Ég ætla að koma því á framfæri að vefstjórinn hérna fyrir ketti er alveg virkilega dónalegur. Ég sé að það er búið að taka í burtu linkinn þar sem hægt var að kvarta(afhverju skildi það nú vera?) þannig að ég verð bara að reyna að koma þessu hér, hvort sem það verður nú birt eða ekki þar sem ákveðnir aðilar ritskoða allt sem hér er birt. En allavegna, þá er verið að kvetja fólk hér í þessu áhugamáli(sem og öðrum hér á hugi.is) að senda inn myndir og svona til þess að gera þetta svolítið líflegt. Og þið vitið sennilega öll hvernig það er að koma inní áhugamálin sem enginn nennir að senda inn myndir og eru sömu myndirnar kanksi búnar að vera í margar vikur og engar nýjar greinar heldur. Þetta er leiðinlegt, ekki satt? Svo þegar maður reynir að vera virkur og senda inn myndir og svona að þá er það heldur ekki nógu gott….ja, ef maður sendir alltaf inn myndir frá sama aðilanum, þá er það ekki gott. Og ég bara spyr, skiptir það einhverju máli hvort að það sé sama slóðin sem birtist aftur og aftur á myndunum á meðan myndirnar eru fjölbreyttar?(þið sem fylgist með hérna vitið eflaust hvað ég er að tala um!) Það er kanski málið að vera bara ekkert virkur og bíða eftir að aðrir sjái um að senda inn myndir sem maður getur síðan haft gaman af. Svona skil ég ekki, en það er bara ég.
Og ef einhverjir eru búnir að fá leið á myndunum sem ég er að senda hingað inn, þá er ekkert mál að senda mér bara skilaboð um að vinsamlegast fara nú að hætta þessu, en ég hef ekki fengið nein frá hugurum, bara frekjulega athugasemd frá vefstjóra áhugamálsins kettir.