Ég er með 4 fullorðnar kisur sem ég verð að fá ný heimili fyrir. Ég er að fara að flytja úr landi og get alls ekki haft þær með mér.
Þetta eru alveg yndislegar kisur.

Ég er með 2 læður sem eru 2 1/2 árs gamlar. Önnur er steingrá og hvít og hin er þrílit. Þær eru báðar rosalega kelnar og skapgóðar.

Svo er ég með læðu sem er að verða eins árs í apríl. Hún er silfurbranda og er algjört krútt. Hún er rosalega kelin og skemtileg og ennþá alveg full af fjöri.

Svo er það littli högninn minn sem er svartur og hvítur og verður líka eins árs í apríl. Hann er frekar fælinn og á mjög erfitt með að treysta fólki en er samt mjög blíður og góður um leið og að hann lærir að treysta manni. Hann er líka alveg einstaklega fallegur og þarf helst heimili þar sem eru mikil rólegheit.
Ennþá betra væri ef að hann og silfurbrandan mín gætu farið saman eitthvert því að þau eru mjög svo náin.

Kisurnar mínar eru allar mjög heilbrigðar. Hafa aldrei veikst og eru með mjög fallegann og góðann feld.
Þær eru ógeldar en læðurnar mínar eru á pillunni og svo er ég tilbúin til þess að borga fyrir geldingu á högnanum ef að einhver vill taka hann að sér.

Ef að þú hefur einhvern áhuga að hafðu þá endilega samband og spurðu að því sem þú vilt eða bara að koma og kíkja á þær.
Ef þér líst á einhverja af þeim geturðu prófað að taka hana í smá tíma og ath. hvort að það gangi eða ekki. Annars geturðu þá bara komið með kisuna aftur til mín.

Ég væri líka mjög þakklát ef að einhver gæti bjargað einhverjum af kisunum mínum að ég fengi kanski að vera í sambandi einstaka sinnum til þess að vita hvernig þeim liði því að mér þykir alveg óendanlega vænt um þær. Þetta eru líka bara alveg yndislegar og vel aldar kelikisur :)

Ég get líka sent myndir ef þið viljið sjá þær.

Jónína S: 663-6320
joninaey@simnet.is