Ég á lítin kisa ca.4 mánaða sem heitir Stalín og ég ætla að segja aðeins frá honum .Ég fékk hann á Selfossi og þar átti að fara að lóga greyinu ( hvílík illska !! ). Svo ég ákvað bara að eiga hann fyrst það stóð til boða .

Þannig er nú mál með vexti að þessi litli sæti kisi klórar sig um alla íbúðina og fær sér snarl inn á milli og er svo sannarlega að myrða allt sem er í passlegri veiðistærð ( því miður taldist jólatréð undir þann flokk ). En inn á milli er hann alger engill og krúsídúlla .

Eina vandamálið fyrir utan geðsveiflurnar hans Stalíns er að
reyna að baða hann , það er hægt , en getur líka þýtt að vera klóraður til bana
og það tekur alltaf mikin tíma að reyna að fá sjálfboðaliða í að hjálpa til .

Lokaorðin vera bara að ég get ekki husað mér að vera án Stalíns!!