Ef eitthvað gerist fyrir dýrin ykkar þá mæli ég með því að þið farið með þau í Víðidal!!Kisan mín “Branda” Meiddist illa eða hér segir frá því……………Á páskadag vorum við vinkonurnar að leika okkur í margskonar útileikjum.Við vorum í vinnk vinnk í pottinn þegar vinkona mín Ásrún heyrði væl frá ketti í bílskúrnum við hliðina á húsinu mínu og kom til okkar og sagði okkur það.Við komum hlaupandi að bílskúrnum og sáum þá að þetta var kötturinn minn,Heiða vinkona sagði “þetta er nú bara hún Branda” eins og ekkert væri en þegar Branda stóð upp sáum við að hún haltraði með vinstri fótinn í eftirdragi!
Við kölluðum á mömmu sem hringdi strax í dýralækni.
Við fórum til dýralæknis , veit ekki hvers,en hún sagði mér alltaf að vera úti í horni og á endanum svæfði hún kisuna mina og setti eikkura grisju á hana sko SKÆRBLEIKA grisju og svo forum við heim til frænku minnar í matarboð og Branda var enn sofandi í búrinu sem við fengum hjá vinkonu mömmu .Branda fékk að vera inni í herberginu hjá litlu frænku minni svo að hún var í ró og næði ! ! Um nóttina eða um eitt leytið fórum við heim og fórum að sofa en við gátum það eginlega ekki því hú Branda vældi svo mikið að við hringdum í dýralækninn en hún sagði að við ættum bara að reyna að gefa henni eitthvað að drekka……Branda var frá sunnudegi til þriðjudags í þessum “hræðilegu” spelkum en þá gat mamma ekki látið þetta ganga lengur svo að við forum í Víðidal og þar leið henni STRAX betur og bara við það eitt að komast inn í það hús kannski var eikkað sérstakt loft þar eða eikkað!!!! En hvar var ég aftur……ó já alveg rétt .Og þar kom kona og sagði okkur að koma með kisuna og hún deyfði hana og tékkaði hvort mjöðmin væri í lagi en Neieieiei………………………….mjöðmin var EKKI í lið!!!!!!!! Það er örugglega geggt vont!
Hún sagði að það þyrfti örugglega að láta hana fara í aðgerð.Við gerðum það sem hún sagði að væri best fyrir Bröndu ,þannig að Branda fór í aðgerð.
Daginn eftir komum við að sækja hana og þá leið henni 100% betur!!!Núna er hún alveg í lagi og getur hoppað og skoppað út og inn um bæjinn en ennþá eru hárin á henni að vaxa á þessum stað þar sem hún var ekki í lið .

Ég mæli sko með VÍÐIDAL ! ! ! ! !