Kisan mín Skotta

Nú ekki fyrir all löngu fékk ég loks lang þráðan kött!! Þessi fallega kisa var nefnd Skotta vegna þess að hún elskar að elta á sér skottið og getur gert það klukku tímunum saman… Hún er 4 mánaða inniköttur. Hún er rosaleg kelirófa og elskar að hafa fólk og krakka í kringum sig!! Uppáhalds dótið hennar er litla músin hennar og pokar, fer þá inn í pokana og sofnar alltaf…= ) algjör rúsína!!! Hún hefur einu sinni strokið út og endaði á að vera læst inni í bílskúr hjá nágrönnunum en þá var ég búin að labba um allt hverfið að leita að elsku litlu kisunni minni en fannst hvergi, svo klukkan 1 um nóttina 22. ágúst læddist hún inn drullu skítug. Henni var skellt strax í bað og líkaði það bara ágætlega!! Daginn eftir kommu nágrannarnir og sögðust hafa heyrt mjálm og fundið hana.= ) En þetta er svona smá um mína lang þráðu kisu!!! Auk þess mun ég vera duglega ða senda inn myndir af henni!!! = )

afsakið stafsetninguna…
kveðja hill88me