Köttur ferðamanna aflífaður Þetta var birt á www.mbl.is í dag 31. ágúst:

“Lögreglan á Blönduósi stöðvaði frönsk hjón á húsbíl við Þrístapa í Þingi á mánudag. Ástæða þessa var ekki of hraður akstur heldur það að með í för hjónanna var köttur. Þar sem ólöglegt er að flytja lifandi dýr inn í landið nema að undangenginni einangrun var haft samband við yfirdýralæknisembættið og í samráði við það var kötturinn aflífaður.
Frönsku ferðamennirnir, sem komu til landsins með Norrænu, tóku þessari niðurstöðu afar illa og neyddist lögregla til þess að handtaka þá og gistu hjónin fangaklefa lögreglunnar á Blönduósi þar til starfsmaður franska sendiráðsins kom og ræddi við þau daginn eftir. Þrístapar, þar sem hin frönsku hjón með köttinn voru stöðvuð, er þekktur fyrir það að þar fór fram síðasta aftaka á Íslandi.”

Afhverju þurfti að aflífa greyið köttinn? Var ekki hægt að setja hann í einangrun og láta svo ferðamennina fá hann aftur áður en þau færu úr landi brott. Mér finnst þetta vera ómannúðlegt og hvergi kemur fram að kötturinn hafi verið veikur eða bæri einhverja sjúkdóma með sér.

Svo finnst mér það alveg óviðeigandi af höfundi þessarar fréttar að vera að minnast á að Þrístapar sé þekktur fyrir það að þar hafi farið fram síðasta aftaka á Íslandi.

Þið eigið að skammast ykkar þarna á Blöndósi!