Litli (Hrafninn)kisinn er kominn Hæhæ,

Ég skrifaði hérna fyrir stuttu að ég væri að fara að fá kettling sem hafði verið skilinn eftir, hann og tveir bræður hans fundust í Víðidalnum í einhverju hesthúsi þar sem móir þeirra hafði skilið þá eftir.

Ég fékk þann stutta núna á miðvikudaginn og ég verð að segja að hann hefur strax breytt heilum helling í heimilishaldinu hérna, hann er alger engill en hann er svoldið hræddur við að vera einn svo að ég hef komið upp smá kerfi fyrir hann uppá að hann verði ekki hræddur við að vera einn heima.
Þegar ég fer út þá skil ég koddann minn eftir á sófanum og legg hann ofan á hann því að á næturnar sefur hann uppí hjá mér á koddanum og þetta virðist valda því að hann lítur á þennan litla hlut sem einhvað sem hægt er að treysta algerlega á, ég veit ekki hvað veldur en þetta virðist virka.

Kisi litli biður að heilsa ykkur öllum eins og ég líka.

Kv. Taran