Amos Hinn Rosalegi Hæ allir Hugarar ég heiti Amos og er Maine Coon Köttur.
Maine Coon kettir eru frá Maine í Bandaríkjunum og eru nokkurs konar skógarkettir þeirra fyrir vestan.

Við erum rosalega sérstakir kettir og hafa margir okkar mjög undarlega siði, t.d. ég hef alveg æðislega gaman af að leika mér í vatni og annað ef ég ætla að fá mér að drekka þá slæ ég loppunni á vatnið áður ég sýp á. Á veturna í Maine lagði alltaf allt vatn og því er þetta okkur meðfætt að þurfa að brjóta ísinn á vatninu til að drekka.
Ég borða líka með loppunum, hmmmmmm (nei ekki hnífapörum) heldur set ég loppuna ofaní skálina og gríp matinn og set upp í mig.

Ég einn lifði af tveim kettlingum og ekki nóg með það mamma fór að heiman sama dag og ég fæddist þannig að pabbi minn hann Maguire varð að ala mig upp og kenna mér að verða alvöru Maine Coon köttur.

Vitiði hvað, honum tókst bara mjög vel upp, þið getið meira að segja séð mig á síðunni sem búin var til um mig, þar eru myndir og videó og svona smá um mig. <a href="http://rabba.sytes.net/Amos/">Smella hér til að sjá mig</a