Það er soldið sniðugt hvernig ég eignaðist seinni kisuna mína.
Það var þannig að ég og vinkona mín vorum heim hjá mér og við skruppum smá stund úr stofuni 2-4 mín. og þegar við komum inn lá svört og hvít kisa í sófanum(hurðin var opin) og við sýndum mömmu hana og vorum eithvað að gefa henni að borða og svona (við í fjölskylduni erum miklir kattarvinir).Þegar leið á daginn settum við hana út en hún fór ekki.
Svo fórum við bara að sofa en næsta dag var hún ennþá í garðinum okkar.
Og svona var þetta líka næsta dag.Þá ákváðum við að setja auglýsingu í blaðið.
Svo leið vikann og enginn svaraði.Þá ákváðum við bara að eiga hana.