Jæja allir félagsmenn Kynjakatta !

Þá er komið af því að kjósa í nýja stjórn og gefst nú öllum félagsmönnum tækifæri til að bjóða fram krafta sína.

Mér fannst tilvalið að minna ykkur á fundinn (man ekki hvenær hann er, en búið er að senda út fréttabréf), þ.s. svo margir tjáðu óánægju sína með síðustu stjórn.
Ég vona að hér á Huga séu áhugasamir aðilar sem væru tilbúnir að blása nýju lífi í stjórn Kynjakatta. Ég vek athygli á því að ekki þarf að vera eigandi af hreinræktuðum köttum, það getur hver sem er gengið í félagið ef hann hefur áhuga á.

Allar upplýsingar eru veittar á kynjakettir@simnet.is eða þá á skrifstofu Kynjakatta í Dugguvogi.

Vonast eftir að fá nýtt “ungt” og hresst fólk til að bjóða sig fram til að gæða félagið nýjum anda.

p.s. Á svo ekki að slá til og halda árshátíð með pompi og prakt !!!
Skógarkettir.tk