Þó að Alexander kötturinn minn sé dáin. Þá fékk hann að upplifa margt sem aðrir kettir fá ekki að gera!
Við bjuggum uppí borgarfirði og vorum í bænum.. svo sáum við að við þurftum að vera þar doldið lengur en við bjuggumst við, s vo mamma bað nágranna konu okkar um að sækja Alla og koma honum einhvernvegin til reykjavikur.. Svo hún skutlaði honum bara uppá Akranes og sendi hann með Akraborgini!
Hann fékk að fara í Akraborgina!! og Ekki bara það.. heldur fékk hann að vera uppi hjá skipstjóranum! Svo tókum við bara á móti honum á Reykjavíkurhöfn! =)
Skipstjórinn sagði að hann hefði verið voða góður og bara spjallað við sig á leiðinni =)