Ég hef alltaf hatað ketti síðan ég var lítill. Það var þannig að ég sá síamskött uppi á grindverki sem mjálmaði eins og fáráðlingur. Ég hélt í minni heimsku að hann kæmist ekki niður svo ég ákvað að fara og hjálpa honum. En um leið og ég ætlaði að taka köttinn upp beit hann mig í handarbakið og hékk þar í dágóða stund á meðan ég orgaði hástöfum. Ég þurfti síðan að fara alblóðugur í einhverja stífkrampasprautu eða eitthvað á sjúkrahús og dæmi.
Um daginn einhvernvegin “hreinsaðist” ég þó af þessu hatri þegar ég heimsótti vinkonu mína sem á kött. Hef síðan þá verið að pæla hver sé svona average kostnaður í uppihald á ketti alveg frá því að hann er keyptur. Einhver?