Embla fann loksins annað heimili :) Kunningja vinkona mín Edda og kærasti hennar Gaui komu í heimsókn. Edda tók Emblu upp og var svo hrifin af henni að hún sagðist alveg vera til í að taka hana heim með sér. Ég sagði henni að taka hana endilega taka hana með sér heim því að við værum að leita handa henni að öðru heimili. Ég bjóst nú samt ekki við því að þau myndi vilja taka hana því að þau eiga þegar einn kött sem heitir Erpur, eina tík sem heitir Dúlla og 10 fiska :) En þau vildu endilega taka hana með sér. Við vorum ekkert smá ánægð að heyra það því að ég var búin að reyna allt til að finna handa henni heimili og var að fara hringja í kattholt til að ath hvort að þau þar gætu tekið hana. Hún var fyrst voðalega hrædd við Erp og Dúllu og ég var farin að vera hrædd um að þau vildu skila henni, en svo núna er hún farin að venjast þeim :) Allt er gott sem endar vel.