Ég á tvær kisur sem heita Krúttmundur og Dimmalimm. Dimmalimm er mamma Krúttmunds,hann er alltaf að ráðast á hana. Grunnlitur Dimmulimm er svartur en svo er hún með gular og gráar yrjur. Uppáhaldið hennar er kjúkklingur og vatn. Grunnlitur Krúttmunds er gulur með rósótt mynstur, uppáhaldið hans er soðin ýsa og volg mjólk. Krúttmundur hefur aldrei týnst og ekki heldur Dimmalimm.Dimmalimm verður átta ára í maí og Krúttmundur verður sex ára í október. Svo var ég að fá hund en kisunum og hundinum kemur vel saman en Krúttmundur ræður alveg yfir hundinum.
Ég elska kisurnar mínar og ég vona að ekkert komi fyrir þær í lífinu.