Hann kisi minn sem heitir Símon er svo mikið krútt og hann er soddan furðufugl líka!
Hann elskar ruslatunnuna í svefnherberginu og er alltaf að henda henni um koll og svo skríður hann inní hana og leggur sig ofan á pokanum. Hann gerir þetta bara við tunnuna í herberginu og enga aðra í íbúðinni. Hann á ból á tölvuborðinu þar sem hann verður fúll ef ég nota tölvuna og hann fær ekki að vera með. Ef maður skammar hann verður hann alveg óður, sérstaklega ef maður bendir á hann með putta!!!! Hann reynir að bíta mann og hálf urrar á mann!
Hann er samt rosalega góður og kelinn og elskar fólkið sitt í tætlur :P