Silly Cat Hæ hér er smá grein um kjána kisann minn,

Kisinn minn hann Theo hefur fengið nafnið Silly Cat hjá fjölskyldunni minni vegna nokkura hluta sem ég er ekki vön að sjá í eðli annara katta sem ég hef átt.

Á hverjum morgni vekur hann mig 15 mín áður en vekjara klukkan hringir til að hleypa sér fram úr herberginu mínu (hann á bæli inni hjá mér), eftir að hann er búinn að vekja mig og ég fer með honum fram gef honum að borða og læt renna smá vatn handa honum því að hann myndi ekki drekka vatn úr skál þótt að hann fengi uppáhalds matinn sinn fyrir það!
Ég fer alltaf beint inn í herbergi eftir að hafa gert þetta og 15 mín eftir að hafa vakið mig þá fer hann að vekja systur mína sem ég bý hjá og dætur hennar tvær, er það vanalegt að kettir láta svona?

Einnig strax og ég kom með hann inn á heimilið varð honum strax í nöp við rvæsr plöntur en lætur allar hinar í friði, búinn að drepa eina en samdi frið við hina.

Þessi kisi elskar það að eltast við nammibréf þá á ég við utan af Draumi og svoleiðis eða reyndar bara allskonar sem heyrist svona aukahljóð í.

Kv. Taran