Hæ hæ! Ég hef nú ekki mikið verið inn á þessu áhugamáli áður en núna datt mér í hug að skrifa grein um köttinn minn því hann er svoldið furðulegur.

Hann heitir Luner, í höfuðið á uppáhalds leikkonunni minni, og er 3ja ára. Um daginn átti ég afmæli og ég fékk svona smá gjöf frá honum um morguninn sem var mús. Ég nottla rak hann út, og ég er alveg viss um að fleiri ykkar hafi fengið svona skemmtilega gjöf.

Í gær var ég að downloada lögum af imesh og lagði mig í sófanum á meðan. Eftir smá stund vaknaði ég við að Luner stökk upp á mig og mjálmaði. Ég bölvaði og ragnaði og stóð upp og leit á tölvuna. Þá var ég að fá MSN skilaboð frá vinkonu minni sem var mjög áríðandi. Ég er að spá í hvort Luner hefur verið að reyna að láta mig vita af því???

Og enn eitt atvikið. Nótt eina um jólin þá svaf hann ekkert alla nóttina og ég ekkert heldur fyrir honum. Hann var mjálmandi og hreyfandi sig alla nóttina. Frænka mín var búin að vera mjög veik og um morguninn var hún dáin…scary??

Ég er að segja ykkur að þessi köttur er furðulegur. Svo horfir hann aldrei á sjónvarp (skrítið) nema þegar Jamie Luner (leikkonan sem hann heitir eftir) er í því. Svo borðar hann eins og margir aðrir kettir hér frekar skrítinn mat. Í uppáhaldi hjá honum um þessar mundir er grjónagrautur. Ég á líka páfagauk sem heitir Júlli og þeir eru bestu vinir.

Er þetta venjulegt?