Í nóvember fengum við fölskyldan kött út kattholti eða kettling! ég hef nú áður skrifað grein um hann (Nýja kisan mín Ljúfur) en það var bara þegar við vorum ný búin að fá hann! svo að ég ættla að segja ykkur aðeins meira frá honum!
Við erum ekki enn viss um tegundina og aldurinn en miðum við það að hann sé svona 10-13 vikna. Hann er grábröndóttur með smá rauðbrúnu inni á milli og hvítur á trýninu, bryngunni, lopponum og maganum. Hann er nú svo furðulegur, föstudaginn seinasta borðaði hann hamborgara!!! ekki bara kjötið heldur líka brauðið með! Honum finnst líka ægilega gott að borða ristaðbrauð með osti og gúrkum! og um daginn át hann pizzu með pepperoni!!!! Eru ykkar kettir líka svona??? síðan drekkur hann bara vatn úr krananum! Síðan finnst honum æðislegt að borða allt sem eldri kötturinn minn er að borða! Hann Ljúfur er geðveikur böggari og hryðjuverkamaður! hann fer inn í herbergi litla bróðurs míns og drepur alla bangsana hann leggur tweeie í einelti :) Síðan er algjört æði að vera í blómapottum og sulla í moldinni! Hann lyggur oft í leini og er að njósna um eldri köttinn sem er á 7. ári og er offitusjúklingur og þolir ekki þegar kettlingurinn er í flippstuði og lemur hann þá laust niður í gólfið! en það stoppar Ljúfan ekki og stekkur á bakið á honum og bítur hann í eyrun, mér finnst bara skrítið að hann skuli þora að vera að bögga hann svona því hann er svo stór og feitur!!!!
Jæja er þetta ekki komið gott? Segjið mér endilega ef ykkar kettlingar eða kettir eru svona eins og terroristinn minn! :þ

K.v. Cookie ;)
*Lifi rokkið*