Kisa mín heitir Doppa og er ekki með neina doppu.
Hún er svo mjó að það mætti halda að hún væri með Anorexíu(ég kann ekki að skrifa það).
Einu sinni þegar ég var að baða mig þá stökk kötturinn inn um baðgluggan og beint ofaní baðið.
Hún var næstum drukknuð,ég reyndi að halda á henni en hún klóraði mig alltaf.Síðan eftir baðið þurfti pabbi á klósettið og hann var alveg að míga á sig og Doppa var inni.
Um leið og pabbi byrjaði að pissa þurfti Doppa endilega að stökkva undir sprænuna.Doppu brá svo að hún fór út um baðherbergisgluggan og hljóp út á götu.Þá þurfti amma mín(sem er ný búin að læra að keyra) að keyra yfir Doppu.
Sem betur fer gat dýralæknirinn læknað hana en hún er bara með annað eyrað.Mamma segjir að ef þessi köttur myndi deyja mundum við ekki fá okkur annað gæludýr.