sælt veri fólkið

Ég fór í Þórsmörk um helgina. (fyrsta skipti sem ég fer þangað sjálfur akandi) og endaði sú för með jeppan fastan í miðri krossá.
En málið er að það var þarna blár og hvítur Suburban, með slysavarnarmerkið á bílstjórahurðinni, og fólkið í honum tók myndir af þessu, og hjálpaði okkur svo á leiðinni til baka úr þórsmörk. Kannast einhver við þennan jeppa, því ég hefði áhuga á því að fá afrit af þessum myndum, þar sem ég var ekki alveg í ástandi til að taka mynd sjálfur.

Endilega hafið samband ef þið kannist við viðkomandi!