Það er eitthvað svo rosalega dauft yfir jeppa áhugamálinu þessa dagana. Það hefur ekki komið korkur í einhverjar vikur. Eru allir svona mikið að ferðast eða hvað?

Endilega komið með eitthvað sem hægt er að ræða um (þræta eða rífast )
Ég er því miður fastur hérna í landi danans þar sem ekki er neitt að sjá nema svarthvítar beljur og Tuborg verksmiðjuna. En svo er auðvitað aðeins betra veður hérna en heima (32° um daginn) en það er ekki eins spennandi og einhverjar spólssögur.

Eru menn ekkert að fara svona stuttar ferðir á kvöldin, bara svona skrepp ferðir? Það fannst mér alltaf lang skemmtilegast þegar ég átti jeppa. Og ef einhver hefur áhuga þá get ég komið með einhverjar skemmtilegar leiðir fyrir ykkur sem er ekki langt að fara.

Svona nú strákar og stelpur allir að vakna og koma einhverju lífi í þetta áhugamál okkar.<br><br>If it aint broken, dont fix it
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.