Er ekki einhver sem er búinn að ganga í gegnum þennan feril að hækka upp 80 Cruiser(langan)fyrir 35“ sem er tilbúinn að gefa góð ráð.
Bíllinn var á 33” dekkjum en ég er búinn að setja hann á 35“ og setja 3ja cm hækkun undir gorma (sem var framkvæmt hjá Fjallasport), en þeir töldu það vera nægilega hækkun fyrir 35” en svo kemur í ljós að framdekkin hjá mér eru með of lítið bil upp í bretti það er ekki hægt að koma hnefa á milli dekks og brettis en að aftan er plássið rétt rúmur hnefi.
Hvað er hagstæðast fyrir mig að gera í stöðuni?


kveðja
INGITH