ef það hefur farið framhjá einhverjum hérna þá hefur ferðafélagið 4x4 verið að afsaka (og ekki afsaka sig)fyrir dónaskapinn sem þeir sýndu gauja og gunna fyrr í mánuðinum. þar er fyrst og fremst verið að passa að klúbburinn sem slíkur fái ekki blett á sig þó svo að 8 bílar merktir þeim hafi keyrt framhjá bílum í nauð. síðan eru sumir sem taka öllu stærra uppí sig og gera lítið úr ferð tvímenninganna. ég veit ekki með aðra en jeppasportið er dýrt og ég er ekki þekktur fyrir að skeina mér með peningunum þó svo að sumir virðast geta leyft sér það og það að gera lítið úr lítið breyttum jeppum er að mínu mati ekkert nema mont! þessi framkoma setti stóran blett á ferðafélagið alveg eins og dónaskapur íslenskra túrista í útlöndum setur blett á alla íslendinga og er með öllu óafsakanleg… á maður bara að hjálpa vel útbúnum jeppum??? hlægilegar afsakanir….. og blikkandi ljós á hálendinu þýðir örugglega ekki það er alltí læi hjá okkur keyriði bara framhjá jafnvel þó svo að neyðarsendingar hafi ekki borist til manns