Þú sem tókst að þér að eyðileggja skíðabrekkuna í Ártúnsholtinu, ættir með réttu að missa bílprófið og fá jeppanum þínum ekið upp í rassgatið á þér. Það er gott og blessað að þú skulir eiga jeppa en þú þarft að kunna að haga þér og kunna að fara með svona tæki.
Ég er ekki einn af þeim sem fer á skíði þarna uppfrá, heldur er ég einn að þeim sem hef átt jeppa og ferðast mikið um landið. Ég fór aldrei í 4x4 en þar er hart tekið á mönnum sem eru að aka á friðlýstum svæðum. Já þetta var og er friðlýst svæði.

Ég kemst ekki inn á moggan núna til að ná í linkinn en það er grein um þetta á MBL.is

Þetta er óþolandi að menn geti ekki hagað sér þó að þeir eigi jeppa. Ég geri mér grein fyrir því að það er gaman að leika sér á jeppanum en þetta er ekki gaman, að eyðileggja heila skíðabrekku sem er gerð fyrir lítil börn.
Og ég hélt að svona rugl væri liðinn tíð, menn eru orðnir eða ættu allavega að vera meira meðvitaðir um umgengni við landi, hvort sem er á snjó eða ekki<br><br>Ekki bögga svínið
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.