Jæja ég er nú bara að spá í eitt..

Ég átti einusinni beinskiptan Ford Explorer ´91 módelið sem ég svo seldi. En nú var ég eitthvað að skoða Explorera svipað gamla og þessi var en ég er bara að sjá að þessir beinskiptu explorerar eru bara ófáanlegir virðist vera. Mér er sagt að þessi beinskipti explorer sem ég átti hafi verið sá eini á landinu. Ég vissi það nú ekki fyrr en eftirá en ég trúi því nú samt tæpast. Annars ek ég í daglegu tali um á nýjum Toyota Avensis. Explorerinn var bara svo skemmtilegur að ég ætlaði að kannski að fá mér þannig líka.

En er eitthvað lítið um beinskipta explorera?
Cinemeccanica