cherokee eyðir nú bara svipað og asískur jeppi í næsta stærðarflokki fyrir ofan (pajero, land crusier, terrano) nema hvað að hann er mikið kraftmeiri, bæði í hestöflum talið og líka í hestöflum á kílógramm þar sem hann er jú voðalega léttur.
en það er nú einhvernveginn þannig að cherokee er eiginlega bara jeppi í sér flokki, það er enginn bíll sem svipar til hans í fleyru en kannski utan máli, þar sem Suzuki Vitara er víst nokkuð nálægt, en verri að langsamlega öllu leiti.
en ef þú villt endilega grjónahaug þá verð ég bara að mæla með bílum eins og HiLux og 4runner fyrir þig, það er ef þú getur þolað óþægileg sæti sem varla skríða yfir gólfinu og lítið fótapláss.
Sparneytinn jeppi er bíll sem eyðir aðeins meira en eyslusamur station bíll, eða svona 12-18 lítrum á hundraðið (í akstri á bundnu slitlagi, ekki í torffærum) og þar geturðu fittað inn grútbrennandi grjónadollum á borð við hilux, 4runner, pajero, land crusier, kannski terrano. svo kannski þrenglsadruslum á við vitöru og jimny. en cherokee eyðir einmitt svipað miklu og þessir bílar og hann brennir ódýrari vökva (já, bensínið er víst ódýrara í dag :P)
þarna má kannski sjá smá að ég er ósammála þér með þessa amerísku, en þetta er jú bara mitt álit og vil ég bera mikilli þreytu fyrir mig í afsökunum fyrir frekar harðorðuðum texta, en ég vona að það missi sig enginn af þessu :P
„Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.“