var að skoða arctictrucks.is og rakst á 2snilldar jeppavísur

1.Jeppabull

Fyllum bæinn Toyotum
Flestar búnar mödderum
Einum galla augljósum
Búnar til úr bjórdósum

Fyllum fjöllin krúserum
Flesta búna lúserum
Einum galla augljósum
Ökumönnum olíulausum


2.Á Hveravöllum um áramót
(Lag “Það má ekki pissa bakvið…”)

Það má ekki skoða Langaskafl
og ekki spóla krapa upp á pall
ekki flýja í bæinn þótt drifið sé að brotna
ekki segja sleði heldur motta.

Þetta fjórhjóla fólk er svo skrítið
það er alltaf að skemma allt
þó maður brjóti ekki neitt
það er alltaf að skemma allt.

Það má ekki sökkva upp að hurð
og ekki setja jeppann oní skurð
og ekki fara að brosa þó einhver þurfi að tosa
ekki fara gráta heldur losa.

viðlag..

Það má ekki aka útaf leið
og ekki bara sitja og bryðja skreið
og ekki fara að hoka þótt aðeins þurfi að moka
ekki rífa upp dyrnar ekki loka.

Viðlag..
Da DaRA