já þá spyr ég um meira. ég veit að það eru til margar gerpir af læsingum í jeppa en ég veit voða lítið um þær…

málið er það að pabbi hefur aðeins meira vit á þessu en ég og hvert skipti sem ég sé eitthvað sem heitir no-spin læsing og nefni það við hann þá er hann ekkert svakalega hrifinn af því…

þá spyr ég hver er munurinn á no-spin og t.d. þessum læsingum með loku eða öðrum læsingum.

þætti vænt um ef einhver hérna hefur mikið vit á þessu og gæti bara þess vegna lýst fyrir mér algengustu læsingum í jeppa og svona kosti og galla við þær :)