Já, ég var að fá mér Jeep Wrangler '89 módel. Þræl flottur bíll og er allur original. Hann er með 4.2l vél.
Mig langar til þess að gera nokkra breytingar á honum og var ég að velta því fyrir mér hvort að þið værðuð með einhverjar hugmyndir um breytingu? :p Til dæmis um vél, skiptingu og fl. Einnig ætla ég að hækka hann og setja hann þá á 35“-38”.
Endilega komið með hugmyndir um þetta og kannski líka um hvernig hásingar væri gott að setja á svona tæki ;D