Já ég ætlaði bara svona að forvitnast hverskonar aðstöðu þið eruð með og verkfæri (Einhver stór eða dýr)

Þá hef ég aðallega áhuga á þeim sem eiga gamla einfalda jeppa með stóra mótora , hvað hafið þið getað gert sjálfir, með hvaða verkfæri og aðstöðu?

Er nauðsynlegt að vera með gryfju til að standa undir bílnum? eða er í lagi að geta legið en með beint bak. T.d. ef maður færi að skipta um hásingar eða eitthvað, eru það ekki helvitis átök hvernig græjur eru menn með við það? Og í hverju eruði aðallega að vinna í og hverskonar aðstöðu eruði með.. Bara segið hvað sem er

Getur maður eitthvað gert við þessa heavy duty bíla ef maður er ekki með 100% aðstöðu og verkfæri hvernig er það?

T.d. ég er með 110 fm upphitaðan skúr með ágætis (ekki mikilli) lofthæð og svona, er það eitthvað að nýtast manni að viti?

Tómas