Sælt veri fólkið. Nú vantar mig dekk fyrir Súkkuna mína. Í augnablikinu er stærð 235/75R15 á honum.

Ef einhver á 4 stykki í nokkuð góðu ástandi sem myndu passa undir hann og á þessar felgur þá endilega hafið samband, annað hvort með því að svara hér, eða í davidar@siminn.is.

Annars langaði mig að vita, hvað kem ég stórum dekkjum undir svona Sidekick án þess að leggja í einhverjar breytingar? Þessi sem eru á honum núna eru 28“ ekki satt? Ég heyrði einhvers staðar að 30” kæmust undir þessa bíla óbreytta. Þessi er reyndar örlítið hækkaður. Og eru til slík dekk sem myndu passa á þessar sömu felgur?