Þar sem að það er ekkert vélsleðaáhugamál ákvað ég að pósta þessu hingað.

Ég var að hugsa það núna um daginn að við sem ættum gamla sleða hvort að það væri kúl að hittast einhverstaðar og keyra eitthvað að eitthvað svipað??

Ég hef verið að skoða svolítið af erlendum síðum um svona gamla sleða og það eru til nokkur félög þar sem að fólk er með gamla sleða og er að hittast og keyra eitthvað.

Ég veit svo sem ekki hvort að það sé mikið af gömlum sleðum í notkun á landinu en sjálfur á ég Ski-Doo Skandic 82 módel… uss það er bara kúl ;)…

Mættuð líka pósta bara hvernig sleða þið ættuð…