Sælir,

Það er hugmynd í gangi í kollinum á mér um að búa til jeppaþætti. Mig langaði bara að forvitnast hvort þið mynduð horfa á þá? Þá er hugmyndin að setja þá á heimasíðu sem ég og nokkrir aðrir erum að fara að opna núna um jólin. Síðan er hýst á ljósleiðaratengingu þannig að það fer bara eftir því hvað þú ert með hraða tengingu hvað þú ert lengi að ná í einn þátt sem verður vonandi ekki meira en 500mb. Og ég stefni nú á að gera þetta þannig að þættirnir verði án endurgjalds og þá bara einhverjir vitleysingar sem vonandi sponsora þetta madness.

Þessir þættir verða á skjön við alla þá bílaþætti sem sést hafa á klakanum og verða soldið í anda Top Gear þáttana sem kannski sumir þekkja. En þar eru bílar meira rakkaðir niður en að hæla þeim og það er meiningin hjá mér. Sýnd verða myndir af vitleysingjaskap okkar félaganna á fjöllum og í breytingum og ef þið lumið á einhverju góðu efni væri það vel þegið.

En hvernig lýst ykkur á þetta? væru þið til í að downloada þessu eða vilduði þá þetta í sjónvarpið?

Kv, Ásgeir hinn ímyndunarveiki!