Já, ég hef mikið verið að spá í því hverjir eru bestu gormarnir undir bílinn. RR, Patrol, Toyota eða einhverjir aðrir framleiðendur. Er Nú með RR gorma sem eru orðnir gamlir og signir og ætla mér að skipta. Samkvæmt einhvurri fjöðrunar könnun sem ég sá á netinu þá kom RR árg 72, lang best út í fjöðrunareigileikum og veit það að RR gormarnir eru sterkir og fjaðra vel! en það er nú allt í lagi að forvitnast um þetta. Gæti nokkur mælt með einhverju ég er með Landrover árg 84, TD sem er nú rétt undir 2 tonnum.