Sælir.
Var að velta því fyrir mér hvort einhver hérna kannast ekki við doge durango með 4,7 lítra V8 vélinni. Mér var sagt að hann eyddi um 13-14 lítrum við bestu aðstæður utanbæjar en í kringum 20 lítrum innanbæjar, miðast þessar tölur við að hann sé aðeins í afturhjóladrifinu.
Geta menn komið með tölur af eyðslu svipaðra bíla til samanburðar?
Hefur einhver reynslu af svona bílum breyttum?