Til sölu Suzuki Samurai 88 módel, bíllinn er hækkaður fyrir 33 tommu dekk en er á mjög lítið notuðum 32“ tommu dekkjum og á flottum álfelgum, hann er ekinn yfir 200 þúsund og ég veit ekki hvað hann er keyrður núna því mælirinn núllast í 100 þús km :D en það er kominn nýr mótor í hann sem er ekinn í kringum 100 þús km ofan, í húddinu á þessum ofur jeppa er 1300 mótor sem skilar heilum 64 hrossum en í hann eru komnar flækjur og 2,5 tommu opið púst sem er 2 ára gamalt. Bíllinn er nýskoðaður 05, hann er ný mótorstilltur, ný tímarreim, ný viftureim, nýr kúplingsdiskur, ”nýjar“ notaðar driflokur, ”nýr“ notaður altenator, ný kerti, nýr Aiwa geislaspilari 4*45 wött svo er vatnsdælan nýleg. Bíllinn er skráður fjögurra mann og er áklæðið bara í ágætis ásigkomulagi, svo er veltigrind í honum.

Það sem er að bílnum er að hjöruliðurinn úr millikassanum í frammdrifskaftið er er orðinn frekar slappur og þarf að fara að skipta um hann þannig ef keyrt er í fjórhjóladrifinu þá víbrar soldið og heyrist soldið í hjöruliðnum.

Annars er bíllinn bara í mjög góðu standi og er örugglega með svona heillegri orginal Súkkum á landinu. Ryð í bílnum er ekki svo mikið en samt soldið.

þessi bíl fer alveg ótrúlegustu hluti fór ferð fyrir stuttu uppá Skjaldbreið og svo uppá langjökul og þar fór hann alveg jafn langt og 38” bílarnir sem ég var með :D

Verð 120 þús staðgreitt.

Sími 6981999 eða Kjoi@itn.is eða bara einkapóst hér á spjallinu og ég heiti Guðmundur :D

Myndir á http://www.cardomain.com/id/jollymf