Sæl veriði jeppafólk. Þannig er það nú að ég á mér 302 Ford mótor sem ég ætla mér að nota þegar fram líða stundir, í hvorn bílinn sem það skyldi vera. Ofan á honum er að finna gamlan slitinn tveggja hólfa Holley sem gerir náttúrulega ekki mikið, en hann segir mér þó að mótorinn hljómi afar vel og er nánast ekkert slitinn. Blessunarlega fer þessi vél til dæmis afar vel með olíu og vatn, virðist vera lítið ekinn og í góðu lagi. Það sem ég vil gjarnan fá álit manna á er hvaða leið skuli fara til að halda mótornum stock en ná samt úr honum þeim hrossum sem þar eru til. Með stock mótor á ég við að breyta honum ekki innandyra þar sem hann er stráheill, heldur finna flott combo til að hengja utan á hann, hvaða flækjur (flækjur og flækjur eru jú ekki það sama), hvaða blöndung, hvaða innpýtingu (er hún möguleiki án endalausra breytinga?), er blower raunhæfur möguleiki, túrbína, hvaða hitt og hvaða þetta? Hvaða combo hefur hentað mönnum vel? Ég hef að sjálfsögðu ákveðnar hugmyndir en gaman væri að fá viðbrögð frá ykkur grúskurum. Kveðjur og þakkir, HHS.