Ég var að garfa í mynda albúmum föður míns og rakst þar á myndir af mjög skemmtilegum bíl. Upphækkaðri Bjöllu. Mér langar að vita hvort einhver viti eitthvað um þennan bíl? Myndirnar sem ég skoðaði voru teknar í einhverjum smábæ úti á landi árið 1993. Og þetta var svona vínrauð(held ég) bjalla sem virtist vera búið að setja á einhverja grind. Var með plast húsi(kannski verið Blæju áður). Komin með vélina frammí og á 33" dekkjum. Ef einhver veit eitthvað um þennan bíl þá endilega skrifið klausu. ;)