Það ákvað vörubíll að strauja mig um daginn þannig að nú vantar mig afturljós farþegamegin á 1985 Ramchargerinn minn.

Ég er búinn að þræða partasölurnar og mér þykir heldur mikið að greiða H.Jónsson tæpar 17000 kr fyrir afturljós.
(ég fann svona ljós á ebay og kostuðu þau ekki nema 51 dollara á “buy now” og það voru bæði ljósin. Verst að kaninn fæst ekki til að senda hingað til lands.)

Lumar einhver ykkar á svona eða veit um bíl í niðurrif?<br><br>Daðmundur hinn spaki
Daðmundur hinn spaki