Er að fara að lóga súkkunni minni, hún þjáist af harðri ákeyrslu og ekki hægt að gera við hana (grindin skökk). Það er þó ýmislegt í lagi í henni og býð ég það hér með til sölu. Meðal annars er það þetta:

Vélin, 1300 orginal vél, keyrð 92.000, ný tímareim.
Gírkassinn, auka gírstöng fyrir hækkaðann bíl fylgir með.
Báðar hásingarnar.
3 millikassar, tveir 1300 og einn fyrir 1000 bílinn.
Drifsköftin, á líka afturskaft fyrir 1000 bíl.

Þetta er engan veginn tæmandi listi. Sendu bara meil eða hringdu ef þig vantar eitthvað sem er ekki á listanum og ég hleyp út og tékka hvort það sé í lagi. Síðan er bara að gera mér tilboð í hlutinn. Athuga öll skipti á öðru jeppadóti, vantar td. CB og NMT loftnet.

Kveðja,
Gísli Sverrisson

S.6906747 eða
6906747@talnet.is