Ég fór á frumsýningu á Nýja Cruisernum um daginn en þessi bíll er kynntur undir nafninu Toyota Landcruiser 90 en þetta er bara alls ekki 90 týpan heldur er þetta gjörsamlega nýtt body sem heitir í raun Landcruiser 120 og þannig er hann t.d. kynntur úti í Þýskalandi. En ég veit ekki hvað Toyota er að pæla með því að kynna þetta sem nýjan Landcruiser 90. En það var lítið varið í þessa sýningu um daginn vegna þess að þeir voru ekki með þennan bíl breyttan.