það byrjaði fyrir nokkrum vikum að heyrast aukahljóð í toyotunni minni (enginn skítakomment frá patroleigendum takk!). er á hilux með 2.4 bensín vél og þetta hljóð er nokkurskonar marr og fer soldið eftir snúningnum á vélinni. heyrist mest þegar bíllinn er settur kaldur í gang en minnkar svo bara þegar ég stíg á bensíngjöfina. heyri þetta svo þegar bíllinn er í gangi og það virðist enginn geta sagt mér hvað þetta er. á að vísu eftir að fara með hann upp í toyotu en ef einhver gæti sagt mér hvað hann haldi að þetta geti verið þá endilega tjáið ykkur.