Lapplander Klúbburinn Ég hef verið að spá í það hversu margir jeppeklúbbar eru á landinu og hvort einhver þeirra er tileinkaður einni sérstakri tegund af bílum, eitthvað segir mér þó að það hljóti að vera Landcruiser klúbbur á landinu þar sem þetta eru nokkurn veginn vinsælustu breyttu jepparnir, en er einver klúbbur sem einbeitir sér að þessum klassísku og “gömlu góðu” jeppum, nokkrir vinir mínir tóku sig til og keyptu sér Volvo Lapplander 1980 árgerð í haust og eru búnir að vera gera hann upp, allt frá því að þeir keyptu hann þá er ég búinn að taka mikið frekar eftir þessari gerð af bílum, bæði á götum Reykjavíkur og úti á landi, ekki get ég sagt til um það hversu margir eru gangfærir en það er slatti af þessum bílum til á landinu og sumir þeirra þarfnast aðeins smá lagfæringa.

Þess vegna hef ég ákveðið að stofna ásamt vinum mínum Lapplander jeppa-klúbbinn á Íslandi, og ástæðan fyrir því að ég er að segja frá þessu hér er til að athuga hvernig viðbrögð þessi klúbbur fengi, er einhver sem á Volvo Lapplander, eða hefur áhuga á að ganga í klúbbinn.

Fyrir þá sem ekki vita hvaða bíl ég er að tala um þá bendi ég á bókina Góðir Íslendingar eftir Huldar Breiðfjörð, sem er ferðasaga manns sem ferðast hringinn í kringum Ísland á Volvo Lapplander.