Það vantar ekki umfjöllunina um Hummer á þessari áhugamálasíðu um jeppa. Ég er nú alveg sammála um að Hummer sé mjög góður jeppi en það er einn galli sem hann hefur og það er hvað hann er þungur. Hann er ábyggilega fínn í harðfeni og svoleiðis dóti en þegar hann er komin í lausamjöll þá held ég að hann pompi bara níður og sitji fastur. Svo er það líka annað mál með hina jeppana. Ok Hummerinn kostar frá 6 og uppí 8 9 millur en þegar þú ert búin að fullbreyta t.d. Patrol á 44" þá er hann komin í sama verðflokk og Hummerinn. En þetta sannar það að allir og allt hefur sína kosti og galla.