Gamla súkkan er allra jeppa best.
Ef þú ert að hugsa um að fá þér góðan jeppa sem kemur heill úr fjalli. Er það umhugsunarlaust Hilux á 38“ eða einhver annar hæfilega lítið breyttur kraftlaus dísiljeppi því þá er minni hætta á að maður sé að brjóta eða eyðileggja eitthvað og svo er hann mjög hagstæður í rekstri. En ef þú vilt vera flottræfill eiga endalaus bílalán og skuldir skulið þið fá ykkur nýja glansjeppa og missa þá.
Ég sjálfur á 95módel af hilux á 38” læstan að framan og aftan og læt mjög vel af honum.

Ég segi að menn eigi að hugsa fyrst og fremst um rekstrarkostnaðinn en svo eru aðrir sem eru í þessu fyrst og fremst til að leika sér og þeir eiga að vera á amerískum bensín bílum því það er ólíkt skemmtilegra að keyra bensínbíla í snjó en þeir eyða flestir bara svo skelfilega miklu.

Þetta er mín skoðun og allir eiga sína skoðun á hlutunum annað væri óeðlilegt.

Helgi Hilux