Hvernig stendur á því að fólk hérna á Íslandi fær sér ekki HUMMER þá er ég nú að meina þessir jeppa kallar. en allavega þetta eru ótrúlega flottir bílar og maður hefði haldið að hálendi Íslands væri kjörið svæði til að leika sér soldið á þessum líka frábæru bílum! þannig að ég segi nú bara afhverju eru allir á upphækkuðum LandCruiser eða Musso HALLÓ hafiði litið á þessa bíla jújú þeir eru flottir en jafnast sko ekkert á við HUMMER! ég veit samt allveg að þeir eru ekki gefins en ef maður hefur virkilega gaman af því að ferðast um hálendið þá held ég að HUMMER sé málið (það kostar nú líka sitt að hækka upp venjulegu jeppana)
Allavega ætla ég að eignast HUMMER! einhverntímann á ævinni:)