Svo er líka annað með þennan musso er að það eru 70-80% líkur á að gírkassinn hrynur eftir 100þ km
ef þeir eru mikið notaðir í fjallaferðir einnig er þetta einginn ofurvél í musso, eins og einn sagði að þetta er gömul vél í nýum búningi, félagi minn og ég fórum í tindfjöll og það er barnaleikur að keyra þar, hann á nýa mussonum og ég á mínum gamla góða suburban á 40“ og hann á 38”, áður en við fórum var hann að segja mér hvað það væri öflug vél í bílnum sínum. Það gekk allt í sögu þartil að við vorum búnir að veru í mestu torfærunum í svona klukkutíma á steiktan vélina, ég varð að draga hann niðureftir. helgina eftir ætluðum við að gera við hann og þegar við opnuðum vélina og það voru 2 stimpilstangir kengbognar. eftir það hefur álit mitt á musso hrunið, þetta er örugglega fínn bíll fyrir venjulegan akstur en þetta er enginn fjallabíll.