Þessi skoðanakönnunn um að hvort Patrol er betri en Hummer er alveg fáránleg.
Ekki það að Patrol sé lélegur og að minu mati er Patrol mjög góður bíll en að spyrja um hvort hann er betri en Hummer er ekki alveg raunhæft því að Patrol er bíll sem margir aka á eða mætti í raun kalla almennings bíl en Hummer er bara svona lúxus sem mjög fáir hafa efni á, plús það að hann er hannaður sem herjeppi.
Ef það er einhver sem ekki sér mikinn mun á Patrol og Hummer þá mundi ég skilgreina hann sem svo lítið klikkaðan.
Ég meina það Patrol kemur með 32“ dekk sem standard á meðan Hummerinn er með 37” standard. Allt fólk ætti nú að sjá smá mun þarna á.