Blúsmenn Andreu Blúsdrottningin Andrea Gylfadóttir kemur fram ásamt blúsmönnum sínum á Norðurljósablús á Höfn í Hornafirði fyrstu helgina í mars. Blúsmennirnir eru Guðmundur Pétursson á gítar, Haraldur Þorsteinsson á bassa, Einar Rúnarsson á Hammond og Jóhann Hjörleifsson á trommur.

Meiri upplýsingar um Norðurljósablús er að finna á síðu Skemmtifélags Hornafjarðar: www.skemmtifelag.is