Eftir glæsilega menningarnótt, þar sem ég gat notið þess að hlusta á jazz, fór ég að velta því fyrir mér hvort ekki séu fleiri uppákomur en tónleikar í desember.

Það vill svo til að ég, og kannski fleiri, er að byrja að kynna mér stefnuna. Allt gott með það en ég veit ekki hvar er hægt að nálgast upplýsingar um uppákomur. Geri ráð fyrir að stjórnendur þessa áhugamáls hafi metnað fyrir því að vera alltaf með nýjustu upplýsingar.

Fyrir þá sem eru inni í málunum spyr ég, aftur, er ekki meir að gerast ? Ég hélt það væri hellingur af fólki sem væri að spila.